Heljartak Sólons

Síðustu daga hef ég ekki komist upp í hesthús vegna anna?  Þar býr vinur minn fjórfætlingurinn Sólon.  Sólon er 12 vetra hestur frá flugumýri í skagafyrði, bleikálóttur að lit og allur hinn fallegasti að utan sem innan.  Sólon tekur mér alltaf með jafnaðargeði þó svo hann hafi sitt skap og sé ekki á allra færi.  En eitt er það sem Sólon er snillingur í og það er að láta mig fá samviskubit og það er það sem er búið að vera að hrjá mig í morgun, en nú birtir til?  Á leiðinni heim áðan kom ég við í hestabúðinni og verslaði hitt og þetta.  Á morgun verður Sólon að spóka úti í gerði með nýjasta múlinn í mosfellsdal,hnakkurinn verður mjúkur sem aldrei fyrr, eigandinn verður í nýjum reiðbuxum og loksins hestinum sæmandi.  Eftir að hafa síðan tölt um dalinn fer Sólon í freyðibað upp úr horse salon sjampói og að sjálfssögðu í greislu þar á eftir.  Þegar eigandinn heldur heim á leið er Sólon vanur að fá brauðbita og heytuggu, en fyrst það er 15 mai á morgun þá fær Sólon auðvitað eggersmann hunangsgláða súkkulaðibita til að japla á.  Já hann Sólon hefur heljartak á eiganda sýnumGrin  

Fólkið í bíómyndunum

Ég tók langa vinnuvakt í gær og er þess vegna eins og ég hafi tekið þátt í kosningar og euro svammli í gær.  Það síðasta sem ég borðaði var hvalsteik kl 24´30 í gærkvöldi og núna er ég buin að fá mér kaffi og þrjár sígó svona til að vakna og kl er 09´00.  Ég sofnaði kl 02´30 og er því ekki útsofinn.  Ég er að fara að vinna kl 12´00 og þarf einhvern veginn að rétta mig af.  Þetta fékk mig til að hugsa um allar bíómyndirnar sem ég hef horft á þar sem þetta er allt svo einfalt, þar vaknar fólkið allt snemma og fer út að hlaupa, hittir nágrannana og spjallar kannski lítið eitt, kemur heim tekur blaðið og fær sér góðan morgunverð og ræðir málin við fjölskyldu meðlimi, síðan halda allir sýna leið glaðir í bragði og það virðist vera þannig að þau séu buinn að vera á fótum í marga klst? Kannski er þetta svona, ég veit ekki en ég er samt að spá í að fara út að hlaupa, kannski út í bakarí

Gengur betur næst

Einhvern veginn hef ég ekki náð því að verða mikill eurovision fan en eins og flestir Íslendingar fylgist ég með svona með öðru auganu og hef gaman af.  Eurovision er held ég merkilegt fyrirbæri fyrir okkur Íslendinga fyrir það hvað keppnin skapar mikið umtal og því fögnum við auðvitað, en auðvitað getum við gleymt okkur í hita augnabliksins eins og ein góð kona sem ég heyrði í, í dag.  Hennar skoðanir voru á þá leið að keppnin væri orðinn algjör skrípalæti og austurblokkin væri sökudólgurinn.  Keppnin er kominn á það plan að ekki er horfandi á þetta.  Á endanum lagði hún til að við kysum framvegis alltaf lélugustu lögin, ja hún hefur eflaust viljað komast á sama plan og hinir

Þolinmæði strax

Ég reyni oft að taka smá hugleiðslu með fyrsta kaffibollanum á morgnana og geri heiðarlega tilraun til að ákveða daginn.  Oft tek ég eitt hugtak fyrir og reyni að einbeita mér að því og í morgun var það þolinmæðin.  Þegar leið á daginn sá ég að þolinmæðin kemur við sögu margoft yfir daginn og miklu oftar en ég hafði spáð í.  Ég þarf að sýna þolinmæði er ég býð eftir strætó, í sjoppunni, í sambandi við vinnufélagana, vinina, vinnuveitendur, umferðina, fjölskylduna, bankann og ég gæti haldið endalaust áfram.  Þetta leiddi hugann að því þegar ég var gutti og spurði mömmu hvað ég ætti að gera, þá svaraði sú gamla taka hnút og skera hreint óþolandi svar.  Já þolinmæðin getur verið erfið en það versta við þetta er að ég hef ekki þolinmæði til að bíða eftir að verða þolinmóður

Fyrirsjáanlegt daður í pólitíkinni

Ég veit ekki hvort ég er orðinn svona harður kall eða hvort pólitíkin er orðinn svona litlaus.  Á stöd 2 var verið að ræða við formenn flokkanna um komandi kosningar og stefnu flokkanna.  Eftir umræðurnar voru svokallaðir álitsgjafar spurðir álits á frammistöðu formannanna, ekki mun ég tíunda það allt  sem þeim fannst um frammistöðuna en það byrjaði á gamani, daðri, og flottu sjónvarpi, já og auðvitað lélegum spyrlum?  Já pólutíkusarnir voru í vörn og sókn, daðri og flottu sjónvarpi.  Jæja til að toppa kvöldið hjá mér er ég kom heim var Ómar með hugljúfa tölu um landið okkar fagra í sjónvarpinu í einhverskonar vísnaformi.

Magnað með okkur

Jæja þá ætla ég að byrja að fræða ykkur um lífið og tilveruna?Ég er búin að vera kvarta við sjálfann mig síðustu daga yfir því að ég sé að vinna of mikið þessa dagana og þar af leiðandi alltaf síþreyttur.Ég er einn af þeim sem hef alltaf hlegið af þeim sem tala um vinnualka.Lenti nú í því að vera í fríi sunnudag og hálfann mánudag og hreinlega gat ekki slakað á.Ég trúi en á gömlu gildinn að vinnan göfgi manninn?Er ég kannski bara nískur og geti ekki sleppt vinnu,nei ég eyði einsog bersekur,ætli málið sé ekki bara að ég kann ekkert að fara með peningaLoL Jæja þarf að drífa mig,hef ekki þolinmæði til að hanga svona við tölvuna svo þarf ég líka að drífa mig í vinnunaErrm

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband