Ég skellti mér um daginn og verslaði mér tölvu svo ég gæti nú bloggað fyrir ykkur,eins og alvöru Íslendingur þá verslaði ég hana á tölvukaupaláni sem ég ætla auðvitað að borga upp í einu lagi sem ég geri auðvitað aldrei, nema hvað þegar afgreiðslumaðurinn ætlaði að fletta mér upp þá var ég týndur í kerfinu. Fyrst varð ég undrandi en þegar ég hugsaði málið betur varð ég auðvitað óstjórnlega glaður. Allar syndir síðustu ára týndust í gleymskunar haf og ég fylltist frelsis tilfinningu sem aldrei fyrr. Allar röngu ákvarðannirnar strikaðar út á einu bretti, engar áhyggjur af greisluþjónustu, íbúðarlánasjóður ekki til, fasteignagjöld ekki inn í myndinni, greiðsluþjónusta aldrei heyrt á það minnst, ég sá fyrir mér mynd þar sem ég ligg á ströndinni og slaka á yfir drykk skreyttann með sólhlif. Allt í einu skall það á mér sem alla frjálsa menn kvíðir, komið þú ert fundinn. Ég skrifaði undir og dreif mig í vinnuna því ekki borga skuldirnar sig sjálfar
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er magnað!!!!
Albert Ólafsson (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.