Ég reyni oft að taka smá hugleiðslu með fyrsta kaffibollanum á morgnana og geri heiðarlega tilraun til að ákveða daginn. Oft tek ég eitt hugtak fyrir og reyni að einbeita mér að því og í morgun var það þolinmæðin. Þegar leið á daginn sá ég að þolinmæðin kemur við sögu margoft yfir daginn og miklu oftar en ég hafði spáð í. Ég þarf að sýna þolinmæði er ég býð eftir strætó, í sjoppunni, í sambandi við vinnufélagana, vinina, vinnuveitendur, umferðina, fjölskylduna, bankann og ég gæti haldið endalaust áfram. Þetta leiddi hugann að því þegar ég var gutti og spurði mömmu hvað ég ætti að gera, þá svaraði sú gamla taka hnút og skera hreint óþolandi svar. Já þolinmæðin getur verið erfið en það versta við þetta er að ég hef ekki þolinmæði til að bíða eftir að verða þolinmóður
Færsluflokkar
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 12610
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hmmm, gæti nú lánað þér smá skammt af þolinmæði, held ég hafi fengið of stóran skammt af henni
Rakel
Rakel (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 12:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.