Omega að safna?

Ég hef tekið eftir því að Omega er með söfnunar átak í gangi hjá sér til að geta stækkað umsvif stöðvarinnar.  Á línuriti sést að Omega hefur tekist að safna tveimur af tólf milljónum sem vantar til að geta breitt út boðskapinn um Jésú krist.  Omega menn eru mjög bjartsýnir og eldmóðurinn skín í gegn.  Eiríkur og félagar hafa samt verið gagnrýndir fyrir það að hafa þegið fé af fólki sem hefur kannski ekki geðheilsu og fjárhagslega getu til að styrkja þá?  Guðsríki er greinilega mjög hlynnt erlendu vinnuafli vegna þess að erlendir prétikarar taka virkan þátt í söfnunni á skjánum.  Eftir stutta umhugsun held ég að ég sé kominn með góða hugmynd fyrir Omega menn,  talið við Brimborgar menn og seljið bílana ykkar,  sparið ferðapeningana hjá erlendu pretikurunum og seljið öll þessi flottu jakkaföt í kolaportinu.  Einnig gæti það verið sterkur leikur að banna öryrkjum og einstæðum mæðrum að gefa í söfnunina og öllum þeim sem eiga um sárt að binda, munið ef þið gefið þá gefur Guð?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Torfi

Hvað rugl er þetta að hafa Goðið í 5 sæti í vinum .............Eysteinn koma svo...........er farinn að slefa á koddann ... Omega menn eru flottir ... spáðu ef þú gefur Brimborg pening þá færðu kannski bíl í staðinn já guð er góður

Gísli Torfi, 24.11.2007 kl. 09:28

2 identicon

Omega  er mjög gott og öflugt  KRISTILEGT sjónvarp og mættu landsmenn geta þess þegar Ísland ber á góma.Án þess að vera með orðaskak við þig, vel ég í þess stað, að benda þér á.

Allt sem kostar-------------verður að greiðast

Allir sem vilja---------------mega vera með. 

Enginn er neyddur með hótunum um upptöku tækis ef ekki er greitt

Fólk spara sér þúsundir króna í sálgæslu og ýmsar sértherapiur,með því að horfa á og  meðtaka orð DROTTINS.

Því miður eru ekki allir svo gæfusamir,að átta sig á því hvað RAUNVERULEGA ER ÞARNA á FERÐINNi.

Ég trúi því ekki að s það sé verið að hafa  veikt fólk að FÉÞÚFU.      Ef það gerist þá er það einhvers annars staðar.

OG svo þessi KASSÍSKA. Sælla er að gefa en þiggja.

Veist þú hvað ég ÖRYRKINN er að borga ríkissjónvarpinu á mánuði  fyrir 1 til 2 fréttatíma á dag. Fyrst þarf ég að greiða "365 "tæpar 1.000kr til þess að ná sambandi við RÍKSISSJÓNVARPIÐ +afnotagjald .Þeim er allveg sama hvort ég get náð útsendingunni eða ekki.Allir verða að greiða vegna þess að þetta er ÖRYGGISTÆKI. Ég hef aldrei vitað sambandslaust tæki gæti gefið öryggi,og það hérna í REYKJAVÍK. Jæja vinur, þetta fór aðeins úr böndunum. Lifðu í GUÐS FRIÐI.  LIFI  OMEGA.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 09:52

3 identicon

Sæll brósi Sjálfsagt mál er að öll frjáls félagasamtök eigi sinn tilverurétt hvaða nöfnum sem þau heita, en jafnfram er það löngu vitað að sum þeirra fara langt út fyrir eðlileg mörk og mörg dæmi sanna að fólk hefur verið haft að féþúfu sem sakir veikinda,þekkingarleysis,fákunnáttu eða annars veit og skilur ekki betur.Víst er að sumir sem eru í forsvari fyrir einhverskonar samtök eða félög hafa matað krókinn í eigin þágu enda oftar en ekki verið höfðuð dómsmál af þeim sökum. Eðlilega er fólk hissa t.d. þegar hugsað er um ónefndann forstöðumann líknarfélags sem búið er að loka,sumarbústaðinn, bílana, lífstíllinn,hvaðan koma allir þessir peningar.gott að geta skammtað sér sjálfur.Og þetta er ekki eina dæmið.Þeir taka þetta til sín sem eiga það,en vert er að vita að alltaf kemur að skuldadögum hvort heldur er í þessu lífi eða einhverju öðru. Það skildi þó ekki vera að sumir enduðu annarsstaðar en við hægri hönd Guðs, ja hérna, ætli þeir sæki í hlýindin, aldrei að vita kannski vita þeir ekki sjálfir að næsta heimfang gæti orðið HELVÍTI. Kveðja systir.

Hólmfríður Skarphéðinsdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 13:54

4 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Omega kemur ekki í staðinn fyrir faglega sálfræðiaðstoð eða annað í þeim dúr, enda gæti það verið stórhættulegt enda eru geðræn veikindi ekki eitthvað sem á að láta viðvaninga reyna að lækna.  ég hvet þig Þórarinn til að spara peningana þína og gangi þér vel með fjölmiðlana.  

Eysteinn Skarphéðinsson, 26.11.2007 kl. 01:04

5 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Sæl systir?  Það er spilling hér og þar en ég held að það sé best að láta félagasamtök og líknarfélög vera undir lagaarminum og oft á tíðum eftirliti.

Eysteinn Skarphéðinsson, 26.11.2007 kl. 01:07

6 identicon

Hólmfríður, þessir menn sem eru vitandi eða óvísvitandi að pretta fólk (s.s. sumir eru trúaðir aðrir ekki en vinna í þessum geira samt, og já það er til þannig fólk  ) þeir enda á sama stað og við öll.

í jörðinni. það er ekkert líf eftir þetta. hér er þá smá boðskapur mínus allt það ó-trúanlega bullshit sem fylgir sumum boðskap..

-- fyrst þetta er lífið sem þú færð, nýttu það núna, ekki vera þykjast borga inná einhvern reikning með kjaftæði og lygum í þessu lífi til að eiga eitthvað meira í því næsta, því það er ekkert næsta --

og Þórarinn minn, ég hef ekki tíma né pláss hér til að skjóta niður allt þau rök sem þú hefur fyrir því a trúa á guð eða nokkurt annað yfirnáttúrulegt. þannig að ég ætla skilja þig eftir með þessa litlu klausu

a) ég gef mér það að þú trúir á guð og þá þennan kristna guð

b) þú býrð hér á íslandi þar sem stærstur hluti trúaðs fólks er kristið

c) þú átt annað hvort foreldra sem voru/eru kristnir, eða trúðu ekki á neinn guð

d) þú gerir þér grein fyrir því að önnur trúarbrögð eru til, svo hundruðum og þúsundum skipta

e) þú ert svo bjartsýnn að halda að ÞÍN trúarbrögð séu þau einu réttu og allir hinir hafa rangt fyrir sér

f) þú gerir þér grein fyrir því að allir hinir í hinum trúarbrögðunum eru ALVEG JAFN VISSIR um að þeirra eigin trúarbrögð eru þau einu réttu

g) ef þú hefðir fæðst í saudi arabíu, þá værir þú múslimi

h) þú heldur ennþá eftir þessa nokkru punkta að þú hafir rétt fyrir þér

i) *faðm* því þú þarft á því að halda þar til þú vaknar af þessum draum

ps.  í biblíunni stendur (btw ég er nokkuð viss um að þu hafir ekki lesið hana frá A til Ö, fæstir trúaðir hafa gert það)  að ef maður kemst að því að konan hans var ekki hrein mey þegar þau giftust, þá á hann að henda í hana steinum þar til hún deyr og gera það á tröppum faðir hennar, s.s. þess aðila sem gaf hana frá sér.

og allir sem hafa haldið framhjá maka sínum eiga að vera drepnir ásamt viðhaldinu. jafnvel þótt viðhaldið sé dýr, þá á að drepa það líka.

já og þeir sem reyna að fá þig til að hætta að trúa á guð, eiga að vera drepnir og þú átt að slá fyrsta höggið sjálfur.

svona .. koma svo .. farðu eftir bókinni þinni. dreptu mig og sýndu mér hvað þú ert morally superior.

 /rant off

pps sorry me plassfrektina eysteinn :)

egill (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 01:22

7 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

það er nóg pláss fyrir alla Egill minn

Eysteinn Skarphéðinsson, 29.11.2007 kl. 06:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband