Færsluflokkur: Spaugilegt

Vonandi verður hann ekki seinn?

Grin Oft getur það verið broslegt hvað ég get verið vanafastur oft á tíðum.  Eftir áralanga notkun á strætó hef ég komið mér upp hinum ýmsu grátbroslegum kækjum.  Upp á síðkastið hefur það tekið uppí tvo tíma að komast heim og á ég það til að bölva og jafnvel sparka í opin biðskýlin, ekki fast þó.  Þó ég sé oft vanafastur þá hefur strætó aldrei vanist en ég hugsa alltaf vonandi verður hann ekki seinn í dag.  í morgun fór ég út á svalir og reykti fyrstu rettuna í rigningu og roki.  Eftir rettuna renndi ég upp úlpunni og hugsaði vonandi verður hann ekki seinn í dag.  Það sem gerði það að verkum að ég fattaði hvar ég var, var það að ég fékk mér sopa af kaffinu og glotti, hvað ertu að standa hér úti á svölum.  Það gengur enginn strætó uppá svalir á suðurgötunni 

Þekkt persóna týndi hring?

Núna þurfum við að taka til hendinni.  Ég tók sem betur fer eftir því í tapað fundið í morgunblaðinu á fimmtudag að þekkt persóna hafði týnd hringnum sínum við kringluna í síðustu viku?  Núna er laugardagur og ég ekki en farinn að leita að hringnum.  Því vill ég skora á alla sem ég þekki að koma fyrir utan kringluna kl átta í fyrramálið og leita að hringnum.  Ég minni á að þetta er þekkt persóna sem týndi hringnum?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband